Jafnréttisstefna KFA
KFA leggur áherslu á jafnrétti kynjanna hvað varðar aðstöðu, þjálfun og fjármagn. Félagið veitir öllum iðkendum möguleika á að stunda íþróttir óháð kynferði, búsetu, trú eða litarhætti.
Tryggja skal að iðkendur beggja kynja hafi alltaf sömu tækifæri og aðstöðu til æfinga Einelti, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni og ofbeldi verður ekki liðið.
Starfsfólk, sjálfboðaliðar og iðkendur leggja sig fram um að læra hvert af öðru, skilja ólíka stöðu fólks vegna samfélagsstöðu, setja sig í spor hvers annars og aðstoða hvert annað eftir fremsta megni.
KFA einsetur sér að vera til fyrirmyndar í jafnréttismálum, leggur áherslu á reglulega rýni á því sem gert er vel og hinu sem gera má betur og tekur fagnandi á móti ábendingum þess efnis.
Þrátt fyrir að íþróttir byggi oftast á skiptingu í karla- og kvennaflokki er fólk með hlutlausa kynskráningu í þjóðskrá velkomið. Félagið einsetur sér að finna lausnir sem henta hverju sinni.
KFA gerir sömu hæfniskröfur til þjálfara beggja kynja og greiða laun skv. menntun þeirra og reynslu en ekki kynferði þeirra sjálfra eða þeirra sem þeir þjálfa.
Iðkendur og aðrir félagsmenn eru meðvitaðir um menningarmun og hugsanlega vanþekkingu innflytjenda á aðstæðum í Fjarðabyggð og leggja sig fram um að aðstoða alla við aðlögun að íþróttastarfi KFA.
Leitast er við að kynjahlutföll séu sem jöfnust í stjórn og starfi KFA.
