Stefna KFA

Skipurit KFA

Formenn ráðanna gegna hlutverki í aðalstjórn.

Framvæmdarstjóri verði ráðinn í 100% stöðugildi ásamt yfirþjálfara og þjálfara sem fer á milli kjarna vegna þjálfunnar á 8, 7 og 6 flokk.

Hlutverk KFA

  • Efla gæði þjálfunar í knattspyrnu 
  • Efla þátttöku knattspyrnu í Fjarðabyggð 
  • Stuðla að félagsstarfi og forvörnum 
  • Grípa þau sem skara fram úr og styðja við þau

Hlutverk framkvæmdarstjóra

  • Fara yfir og huga að fjárhags- og markmiðaáætlun ráða, veita aðstoð og ráðleggingar vegna þeirra. 
  • Sjá um rekstur félagsins og ganga úr skugga um það að rekstur KFA sé innan fjárhagsáætlana. 
  • Að afla fjár til reksturs í samvinnu við aðalstjórn. 
  • Kemur að skipulagningu og undirbúning fyrir æfinga- og keppnistímabil ár hvert. 
  • Heldur utan um samninga við leikmenn meistaraflokka ásamt yfirþjálfurum.
  • Halda utan um alla kynningu á félaginu til samfélagsins og hagaðila. 
  • Samræma fjáraflanir deilda/ráða. 
  • Að taka fyrir aga- og samskiptamál bæði leikmanna og þjálfara. 
  • Sér um ráðningu á þjálfurum og hafa allar starfslýsingar á hreinu í samstarfi við yfirþjálfara og aðalstjórn. 
  • Sjá um að þjálfarar tileinka sér Abler og nota kerfið á skilvirkan hátt. 
  • Gera auglýsingasamninga vegna meistaraflokka og yngri flokka. 
  • Sjá um samninga vegna akstur í keppnisferðum. 
  • Sjá um samninga vegna gistinga og máltíða í keppnisferðum í samráði við þjálfara. 
  • Sér til þess að æfingatöflur séu réttar og birtar á réttum tíma. 
  • Sér um samskipti við stuðningsaðila. 
  • Sér um leikja – og mótamál yngri flokka í samráði við yfirþjálfara.

Hlutverk yngriflokkaráðs

Yngriflokkaráð sér um rekstur yngri flokka sem felst í að: 
  • Skipulega minni fjáraflanir. 
  • Ræður yfirþjálfara og semur um laun hans. 
  • Ráða þjálfara hvers flokks í samráði við yfirþjálfara. 
  • Innheimtir æfingagjöld. 
  • Kaupir búninga á lið yngri flokka og semur um auglýsingar á þá í samráði við framkvæmdarstjóra KFA. 
  • Sér um lekja- og mótamál yngri flokka. 
  • Heldur árlega aðalfund yngriflokkaráðs.

Hlutverk meistaraflokksráðs

Meistaraflokksráð sér um rekstur meistarflokk félagsins sem felst í að: 
  • Sér um samningsmál leikmanna ásamt framkvæmdarstjóra 
  • Ræður yfirþjálfara og semur um laun hans. 
  • Gerir árlega fjárhagsáætlun með framkvæmdarstjóra sem lögð er svo til aðalstjórnar. 
  • Heldur árlegan aðalfund meistaraflokksráðs. 
  • Sér um heimaleiki félagsins í samráði við framkvæmdarstjóra.

Hlutverk yfirþjálfara

  • Sér um, í samráði við unglingaráð (yngriflokkaráð) og framkvæmdarstjóra, ráðningu á þjálfurum. 
  • Sér um í samráði við ráðin niðurröðun æfingatöflu vetrarins. 
  • Er tengiliður í samskiptum við sérsamband sinnar greinar vegna mótamála, keppnisferða, agamála og annars er upp kann að koma í samskiptum milli yngri flokka/meistaraflokks og viðkomandi sambands. 
  • Tekur þátt í undirbúningi og framkvæmd móta sem félagið stendur fyrir. 
  • Setur upp námskrá fyrir áhersluatriði í hverjum flokki. 
  • Hefur eftirlit með störfum og undirbúningi annarra þjálfara yngri flokka. 
  • Sér um faglega ráðgjöf öðrum þjálfurum til handa. 
  • Heldur reglulega fundi með þjálfurum. 
  • Kemur upp gagnabanka (möppur/bækur/tölvuefni ofl.) vegna þjálfunar. 
  • Fylgist með undirbúningi og framkvæmd keppnisferða. 
  • Grípur inn í og er til ráðgjafar þar sem agamál koma upp innan flokkanna, bæði gagnvart iðkendum og þjálfurum. 
  • Ef um erfið mál að unnið sé eftir leiðbeiningum samskiptaráðgjafa ÍSÍ. 
  • Er tengiliður við foreldra ásamt framkvæmdarstjóra. 
  • Situr foreldrafundi flokkanna. 
  • Sér um samskipti við þjálfara og starfsmenn annarra félaga.
Leit