Lög Knattspyrnufélags Austfjarða
1. gr. Nafn
Nafn félagsins er Knattspyrnufélag Austfjarða. Aðsetur þess og varnarþing er í Fjarðabyggð.
2. gr. Markmið
Markmið félagsins er að efla og útbreiða iðkun knattspyrnu og aðrar viðurkenndar íþróttir í Fjarðabyggð og stuðla að heilbrigðu og þroskandi félagslífi, í samræmi við gildandi íþróttanámsskrá félagsins á hverjum tíma og gildandi stefnu ÍSÍ um barna-, unglinga- og afreksíþróttir.
3. gr. Aðgreining fjárreiða
Fjárreiður yngri flokka og meistaraflokka skulu aðskildar. Meistaraflokksráð og yngri flokka ráð skulu hafa sína eigin stjórn og eigin fjárhag og bera ábyrgð gagnvart aðalstjórn. Aðalstjórn félagsins fer með æðsta vald innan félagsins milli aðalfunda, ber ábyrgð á fjármálum félagsins í heild og mótar starfsemi þess.
4. gr. Innganga
Félagi telst sá einn, sem skráður er í félagatal. Félagið er opið öllum sem áhuga hafa á að starfa innan þess að íþrótta- og félagsmálum. Þeir gerast sjálfkrafa félagar sem æfa með félaginu, en aðrir skrá sig með því að tilkynna slíkt til félagsins í gegnum formlegar samskiptaleiðir félagsins.
5. gr. Merki og búningar
Merki félagsins – Rauður skjöldur á hvítum grunni með mynd af fjalli, fótbolta og skammstöfum félagsins. Einkennislitir félagsins eru rauður, hvítur og dökkblár. Búningur - Treyja: Rauð, Buxur: Dökkbláar, Sokkar: Rauðir. Varabúningar – Treyja: Gul, Buxur: Svartar, Sokkar: Gulir.
6. gr. Reikningar
Aðalstjórn er ábyrg fyrir að annast færslu bókhalds og hefur eftirlit með fjárreiðum félagsins. Aðalstjórn gerir heildar rekstrar- og efnahagsreikning yfir allan fjárhag félagsins. Ársuppgjör deilda/ráða fyrir síðastliðið reikningsár skal lokið fyrir 15. apríl ár hvert. Ársuppgjöri félagsins skal lokið fyrir 30. apríl ár hvert.
7. gr. Aðalfundur félagsins
Starfsár félagsins miðast við almanaksár og er æskilegt að aðalfundur félags fari fram á fyrsta þriðjungi ársins.
Til aðalfundar skal boðað með auglýsingu á samfélagsmiðlum félagsins með minnst tveggja vikna fyrirvara. Einnig skal auglýsa fundinn með sama fyrirvara í húsakynnum félagsins.
Aðalfundur hefur æðsta vald og ákvörðunarrétt í öllum málefnum félagsins.
Aðalfundur telst lögmætur, ef löglega er til hans boðað.
Allir félagar í KFA 18 ára og eldri eiga rétt á að sitja aðalfund með málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt. Yngri félagar hafa heimild til að sitja aðalfund og hafa þar mál- og tillögufrelsi.
Enginn fulltrúi má fara með meira en 1 atkvæði á aðalfundi félagsins.
Framboð og aðrar tillögur en lagabreytingartillögur skulu berast aðalstjórn eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund, og skal dagskrá fundarins kynnt félagsmönnum tímanlega þar sem fram kemur hvort lagabreytingar eru á dagskrá og þá hverjar.
Tillögur til lagabreytingar þurfa að berast að lágmarki tveimur vikum fyrir aðalfund.
Til lagabreytinga þarf samþykki 2/3 greiddra atkvæða. Aðrar tillögur sem lagðar eru fram á aðalfundi hljóta samþykki með einföldum meirihluta.
Formaður aðalstjórnar skal kosinn á aðalfundi til eins árs í senn. Jafnframt skal kjósa fjóra meðstjórnendur til tveggja ára í senn. Auk þess skal kjósa eina manneskju í varastjórn til eins árs í senn.
8. gr. Aukaaðalfundur
Aukaaðalfund má halda, ef aðalstjórn telur þess þörf, eða ef ¾ hluti ráða félagsins krefjast þess skriflega. Ekki má breyta lögum félagsins á aukaaðalfundi, ekki kjósa stjórn nema bráðabirgðastjórn ef stjórnin verður að einhverra hluta vegna óstarfhæf. Bráðabirgðarstjórn starfar eingöngu fram að næsta reglulega aðalfundi.
9. gr. Dagskrá aðalfundar félagsins
Á aðalfundi félagsins skulu tekin fyrir eftirfarandi málefni:
- Kosning í eins manns kjörnefnd.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla aðalstjórnar, sem leggur fram heildarskýrslu um starfsemi og framkvæmdir á vegum félagsins á liðnu starfsári.
- Skýrsla um fjárhag félagsins þar sem lagður er fram til samþykktar skoðaður efnahags- og rekstrarreikningur félagsins í heild.
- Tillögur að lagabreytingum lagðar fram til samþykktar.
- Kosning formanns til eins árs.
-
Kosning fjögurra manna í aðalstjórn til tveggja ára og eins varamanns til eins árs í senn.
- Kosning fulltrúa fyrir Breiðdalsvík og Stöðvarfjörð
- Kosning fulltrúa fyrir Reyðarffjörð og Fáskrúðsfjörð
- Kosning fulltrúa fyrir Eskifjörð og Neskaupstað
- Kosning fulltrúa óháð búsetu.
- Kosning formanns, varaformanns og gjaldkera til yngri flokka ráðs til eins árs í senn.
- Kosning formanns, varaformanns og gjaldkera til meistaraflokksráðs til eins árs í senn.
- Kosning tveggja skoðunarmanna.
- Önnur mál.
- Fundargerð lesin upp og skráðar athugasemdir ef fram koma.
Kjörnir fulltrúar í aðalstjórn skv. lið 7.1 – 7.4, Þurfa ekki að vera með lögheimili á viðkomandi stöðum, heldur vera fulltrúi fyrir viðkomandi stað. Ef ekkert framboð fæst fyrir tilgreinda firði þá fellur það skilyrði niður.
10. gr. Verksvið aðalstjórnar
Aðalstjórn er skipuð sjö manns, 5 eru kosnir á aðalfundi en tveir meðstjórnendur skipaðir, annar af meistaraflokksráði og hinn af yngri flokka ráði.
Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund félagsins skiptir aðalstjórn með sér verkum og skipar varaformann, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda.
Aðalstjórn ber að efla félagið og gæta hagsmuna þess í hvívetna.
Aðalstjórn fer með yfirráð yfir fjármálum félagsins og ber endanlega ábyrgð á fjármálum félagsins. Þá hefur aðalstjórn umráðarétt yfir öllum eignum félagsins.
Aðalstjórn skal boða á fund sinn formenn ráða eftir því sem þurfa þykir og eigi sjaldnar en árlega til viðræðna um málefni er varða starfsemi ráðanna. Formenn ráða skulu þá gefa skýrslur um starfsemi og fjárhag ráða og ræða sameiginleg mál.
Aðalstjórn ákvarðar félagsgjöld og skal halda skrá yfir alla meðlimi félagsins.
Formaður boðar stjórnarfundi, þegar hann/hún eða meirihluti stjórnar telur nauðsynlegt, og er stjórnarfundur ályktunarhæfur ef að minnsta kosti 5 stjórnarmenn eða varastjórnarmenn sækja fund. Aðalstjórn skal halda fundargerðir á fundum stjórnarinnar.
Aðalstjórn er heimilt að skipa þær nefndir og ráð innan félagsins, sem hún telur þörf á og setja þeim reglur.
Aðalstjórn ræður framkvæmdastjóra til félagsins og ákveður kjör hans. Skal verksvið framkvæmdastjóra vera daglegur rekstur félagsins og mannvirkja þess, umsjón með bókhaldi og fjárreiðum, samskipti við sveitarfélög, íþróttahreyfinguna, önnur íþróttafélög og þess háttar.
Starfssvið framkvæmdastjóra skal útfært nánar í starfslýsingu sem aðalstjórn setur.
11. gr. Verksvið meistaraflokksráðs og yngri flokka ráðs
Formaður boðar stjórnarfundi, sem skylt er að halda reglulega, og skulu fundargerðir haldnar.
Hvert ráð hefur sjálfstæðan fjárhag. Stjórnir ráða skulu annast allan daglegan rekstur og til ráðanna rennur ágóði sem kann að verða af starfsemi þeirra.
Stjórnir ráða skulu árlega leggja fram hallalausa fjárhagsáætlun til aðalstjórnar og fá hana samþykkta áður en þær gangast undir fjárhagslegar skuldbindingar. Stjórnir ráða þurfa að fá samþykki aðalstjórnar á öll frávik frá rekstraráætlun og allar viðameiri fjárhagslegar skuldbindingar ráða.
Aðalstjórn hefur á hverjum tíma rétt til að skoða bókhald og fjárreiður ráða og getur í því skyni tilnefnt sérstakan trúnaðarmann til slíkra verka, sem getur komið með fyrirmæli og tillögur til úrbóta ef þurfa þykir.
Stjórnum ráða er heimilt að innheimta æfingagjöld af iðkendum.
Stjórnir skulu halda skrá yfir alla iðkendur viðkomandi ráða og skal afrit af þeim sent aðalstjórn.
12. gr. Eignir
Eignir ráða eru sameign félagsins. Hætta ráð störfum renna eignir þess óskiptar til aðalstjórnar.
13. gr. Heiðursfélagar og heiðursmerki
Viðurkenningu fyrir störf í þágu félagsins eða íþróttahreyfingarinnar, svo og fyrir íþróttaárangur, veitir aðalstjórn samkvæmt „Reglugerð um heiðursfélaga og heiðursmerki Knattspyrnufélags Austfjarða“.
14. gr. Úrsögn
Skrifleg úrsögn úr félaginu er heimil hvenær sem er. Úrsögn skal komið til skrifstofu aðalstjórnar.
15. gr. Brottrekstur
Hafi félagsmaður brotið lög þessi eða með framkomu sinni vegið að heiðri félagsins og markmiðum, er aðalstjórn heimilt að víkja aðilanum úr félaginu. Aðalstjórn er skylt að boða viðkomandi félagsmann á sinn fund og gefa honum kost á að koma á framfæri andmælum. Ákvörðun aðalstjórnar um brottrekstur er gild, ef ¾ stjórnarmanna samþykkja brottreksturinn.
16. gr. Veðsetning fasteigna
Til veðsetningar fasteigna þarf samþykki ¾ stjórnarmanna aðalstjórnar.
17. gr. Sala fasteigna og félagsslit
Sala fasteigna telst því aðeins lögmæt hafi ¾ stjórnarmanna aðalstjórnar samþykkt hana. Að auki þarf 2/3 atkvæðisbærra félaga á lögmætum aðalfundi að samþykkja söluna.
Félagsslit geta ekki öðlast gildi nema aðalstjórn samþykki þau og tveir (2) lögmætir aðalfundir hafi samþykkt félagsslit með 2/3 hluta greiddra atkvæða. Koma þarf fram í boðun aðalfundar að fjalla eigi um slit félagsins.
Komi til slita á félaginu renna eignir til ákveðinna félaga með ákveðnu hlutfalli:
- Þróttur Fjarðabyggð 22,5%
- Austri Fjarðabyggð 22,5%
- Valur Fjarðabyggð 22,5%
- Leiknir Fjarðabyggð 22,5%
- Súlan Fjarðabyggð 5%
- Hrafnkell Freysgoði Fjarðabyggð 5%
Jafnframt er skilyrði að eignir renna til knattspyrnuiðkunar í samfélaginu. Aðalfundi vegna félagsslita skal halda með minnst fjögurra (4) vikna millibili og mest átta (8) vikna millibili.
18. gr. Samstarf
Félagið er aðili að héraðssambandinu ÚÍA og hlýtur þannig aðild sína að ÍSÍ.
19. gr. Gildistaka
Lög þessi og síðari breyting á þeim taka ekki gildi fyrr en þau hafa verið samþykkt af stjórn UÍA og framkvæmdarstjórn ÍSÍ.
